Vestfirðir eru kjörinn staður til kajakiðkunar. Lignir firðir og fjölskrúðugt dýrlíf laða að fjölda náttúruunnandi ævintýramanna og kvenna á ári hverju. Auðvelt er að læra undirstöðuatriðin í kajakróðri og ættu allir að geta fundið kajakferðir við sitt hæfi, hvort sem það er léttur róður út á Poll eða margra daga leiðangur í Jökulfirði!
Fjöllin og dalirnir í nágrenni Ísafjarðar bjóða upp á óendanlega möguleika. Starfsmenn okkar eru hressir og fróðir og þekkja hverja þúfu á svæðinu. Á vissum leiðum erum við svo búin að koma upp festingum og keðjum til þess að tryggja að allir komist leiðar sinnar.

Ef það er eitthvað sem er skemmtilegra en dagsferðirnar okkar, þá eru það margra daga ferðir. Að komast í burtu frá amstri dagsins og kanna eyðifirði og dali, heimili refa, sela og fugla, er kjörin leið til að hlaða batteríin.  Á skíðum eða kajak, eða blanda af báðu, allt er mögulegt!

Vinsælast

Á lygnum sjó
Vinsælasta ferðin okkar! Léttur tveggja tíma róður á Pollinum á Ísafirði. Hentar vel byrjendum.
7.500 kr.
Tveggja fjarða rólegheit
Heils dags kajakferð um eyðibyggðir. Reglulegir fundir við refi, seli og jafnvel hvali!
14.400 kr.
Via Ferrata
Nýjasta nýtt í íslenskri útivist; fjallaleið sem búin er áföstum vírum, keðjum, stígum og brúm.
11.400 kr.
Toppurinn á Vestfjörðum
Klífðu Kaldbak, hæsta fjall Vestfjarða. Hressileg ganga sem ætti að vera fær flestum.
14.400 kr.
Upp á Fjöll
Gengið frá Seljalandsdal, yfir fjallaskörð og til Bolungarvíkur. Rykið þvoð af í sundlaug bæjarins í lokin.
6.900 kr.
Kajakparadís
Lærðu kajaktökin í heitu lauginni í Reykjanesi áður en haldið er út á fjörðinn til fundar við seli og aðrar verur.
15.400 kr.

Um North Explorers

North Explorers er hluti af Borea Adventures sem hefur síðan árið 2006 staðið fyrir ævintýraferðum á seglskútu um Vestfirði, austur Grænland og Jan Mayen við góðan orðstír. North Explorers sér um allar dagsferðirnar og lengri kajakferðir.

Markmið NE er að bjóða upp á frábærar dagsferðir og lengri ferðir um náttúru Vestfjarða í sem mestri sátt við náttúruna. Við trúum að besti ferðamátinn sé að ferðast ,,hljóðlega" þ.e. notast sem minnst við vélknúinn ökutæki. Því leggjum við mesta áherslu á gönguferðir, fjallgöngur og kajakferðir af ýmsum erfiðleikastigum.