Bookmark and Share

Dagsferðir North Explorers á Ísafirði

Ísafjörður er lítill og heillandi bær í harðgerðri náttúru Vestfjarða. Landslagið sem umlykur bæinn býður upp á fjöldann allan af tækifærum til útivistar, fjöllin eru innan seilingar og sjórinn er undir fótum þér! Það er stutt út í náttúruna frá Ísafirði og hún býður göngufólki að njóta fjalla og dala í sinni fjölbreyttustu mynd. Það ætti engum að koma á óvart að Vestfirðir einkennast af fjölda fjarða sem skera sig inn í landið. Margir segja að fjórðungurinn minni á drekahöfuð. Allir þessir firðir gera það að verkum að Vestfirðir eru gósenland til kajakferða. Að renna á kajak eftir sléttum sjónum í félagi við seli og fugla er ógleymanleg lífsreynsla. Við hjá North Explorers viljum að þú fáir að kynnast helsta nágrenni okkar og komir með í ógleymanleg ævintýri.