Bookmark and Share

Fjallgöngur North Explorers

Ef það er eitthvað sem einkennir vestfirskt landslag, þá eru það fjöllin. North Explorers býður upp á tvær spennandi fjallgöngur sem hæfa fólki sem hefur einhverja reynslu af gönguferðum.

Annarsvegar er það fjallganga a Kaldbak, hæsta fjall Vestfjarða. Fjallið er í hjarta ,,Vestfirsku alpana" eins og skaginn milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar er oft nefndur. Skaginn einkennist af tindalandslagi, hnífsbeittum fjallseggjum og fögrum dölum. Á góðum degi má sjá Snæfellsjökul í fjarska af toppi fjallsins.

Hinsvegar er það Via Ferrata sem er nýtt á Íslandi. Ferðin hefst á göngu upp Bakkahyrnuna milli Hnífsdals og Ísafjarðar. Þaðan er gengið inn Eyrarfjallið með útsýni í allar áttir; inn Ísafjarðardjúp, Jökulfirði og yfir Ísafjörð og Hnífsdal. Á leiðinni þarf að þræða fyrir klettadranga of fjallaskörð og er búið er að koma fyrir köðlum til þæginda. Sannarlega frábær ferð.