Vestfirðirnir
einkennast af mörgum fjöllum en ekkert þeirra er sérstaklega hátt. Flest þeirra
eru flöt að ofan sem er merki um jökulrof síðustu ísaldar. Þó er hægt að finna
sanna tinda og eru flestir þeirra staðsettir á skaganum milli Dýrafjarðar og
Arnafjarðar. Svæðið er oft kallað Vestfirsku alpanir vegna þess hve þeir minna
á evrópsku Alpana. Hæsti tindurinn er Kaldbakur 998 metrar (hann nær 1000
metrum ef þú sendur ofan á vörðunni!). Gönguleiðin á Kaldbak er ekki flókin eða
erfið og er ágætur stígur þegar nær dregur toppi fjallsins.
Við keyrum frá
Ísafirði að upphafsstað okkar í Kirkjubólsdal (1 klst.) og göngum inn dalinn og
förum rólega upp hlíðina meðfram hrygg sem liggur upp á topp fjallsins. Síðari hluti
ferðarinnar er brattari en jarðvegurinn er stöðugur og góður til að ganga á.
Frá toppnum fáum við frábært útsýn yfir næstum alla Vestfirðina. Á heiðskírum degi
er jafnvel hægt að sjá Snæfellsjökul í suðri. Við fylgjum sömu leið niður og
keyrum síðan aftur til Ísafjarðar.
Búnaður: Dagspoki,
vatnsflaska, góður fatnaður eftir veðri og gönguskór.
Erfiðleikastuðull: 3 af 5 – Meðal
Tímabil: 1/6 – 30/9
Brottför: Föstudaga kl:
9:00 frá skrifstofu North Explorers.
Lengd: 7 klst.
Verð: 14.400 kr. á
einstakling
Innifalið í
verði: Keyrsla og
leiðsögn og girnilegt heimatilbúið nesti!
Lágmarksþátttaka: 4 einstaklingar
Mögulegt er að semja
um brottför á öðrum degi ef leiðsögumenn eru lausir. Endilega spyrjið!