Via Ferrata er
ítalska fyrir „járnvegurinn“ og er fjallaleið sem er búin áföstum vírum, stigum
og brúm. Fyrstu Via Ferrata leiðirnar voru gerðar í Dolomíta fjöllunum á
Ítalíu í fyrri heimstyrjöldinni, til að aðstoða flutning landgönguliða með
öruggum hætti yfir erfið fjöll. Þessi mannvirki hafa síðar verið endurbætt og orðið mjög vinsæl í
Ölpunum, bæði af heimamönnum og gestum. Núna er tækifæri til að reyna íslenska
útgáfu af þessu skemmtilega fyrirbæri fyrir ofan Ísafjörð.
Við keyrum til
Hnífsdals, göngum upp auðvelda hlíðina að mjóum fjallshrygg Bakkahyrnunnar og
höldum áleiðis upp á topp Eyjarfjalls. Við
fylgjum flatri brún fjallsins sem er í um 700 metra hæð yfir sjávarmáli. Á leið
okkar inn fjallið, höfum við frábært útsýni yfir Ísafjarðardjúp í austri, Hnífsdal
í norðri og Ísafjörð og umliggjandi fjöll í vestri. Öryggislínur eru staðsettar á
leiðinni og við notum einfaldan öryggisbúnað til að gera ferðalagið þægilegra.
Við fylgjum fjallinu uns við komum að skíðasvæðinu á Seljalandsdal þar sem við
höldum niður snjólausar skíðabrekkurnar.
Búnaður: Góðir gönguskór,
hlýr og vatnsheldur fatnaður.
Erfiðleikastuðull: 4 af 5 –
Krefjandi
Tímabil: 1/6 – 31/10
Brottför: Þriðjudaga,
fimmtudaga og sunnudaga kl: 12:50 frá skrifstofu North Explorers. Vinsamlegast mætið
tímalega þar sem rútan fer stundvíslega kl: 13:00.
Lengd: 5 klst.
Verð: 11400 kr. á
einstakling
Innifalið í
verði: Akstur, öryggisbúnaður og leiðsögn og girnilegt heimatilbúið nesti!
Lágmarksþátttaka: 2 einstaklingar
Aldurstakmark: 14 ára
Mögulegt er að semja
um brottför á öðrum dögum ef leiðsögumenn eru lausir. Endilega spyrjið!