Valley to Valley

Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
Open the calendar popup.
1
9900 ISK
58.84 EUR
76.94 USD
ISK
58.84 EUR
76.94 USD
Bookmark and Share

Dalahopp frá Seljalandsdal til Hnífsdals

Ferðin hefst með stuttri rútuferð til Hnífsdals. Þaðan hefjum við gönguna inn víðan og grænan dalinn bak við þorpið, þar sem við fylgjum gömlum vegi með brött fjöllin sitthvoru megin við okkur þar til við komum að Þjófatindum. Milli tindanna er auðveld ganga upp að fjallsskarðinu þar sem er frábært útsýni yfir Ísafjörð.

Eftir að hafa fengið okkur hressingu, göngum við niður og höldum í átt að Seljalandsdal, fram hjá litlum vötnum og næstum neongrænum mosanum. Frá gönguskíðasvæðinu göngum við eftir veginum til Ísafjarðar.

 

Búnaður: Dagspoki, vatnsflaska, góður fatnaður eftir veðri og gönguskór. Athuga skal að snemma í júní getur verið snjór á leiðinni. Góður skófatnaður er lykilatriði til að njóta ferðarinnar.


Erfiðleiki: 2 af 5 – Auðvelt

Tímabil: 15/5 – 30/9

Brottför: Sunnudaga, miðvikudaga og föstudaga frá skrifstofu North Explorers . Vinsamlegast mætið tímalega þar sem rútan fer stundvíslega kl: 13:00.

Lengd: 4 klst.

Verð: 6900 kr. á einstakling

Innifalið í verði: Rútuferð og leiðsögn og girnilegt heimatilbúið nesti!

Lágmarksþátttaka: 2 einstaklingar

 

Mögulega má semja um brottför á öðrum degi ef leiðsögumenn eru lausir. Endilega spyrjið!