Bookmark and Share

Gönguferðir um nágrenni Ísafjarðar

Fjöllin og dalirnir kringum Ísafjörð bjóða áhugasömum göngugörpum upp á frábær tækifæri til dagsferða í óspilltri náttúru. Útsýnið yfir fallegan bæinn og stórkostleg fjöllin sitthvoru megin við Ísafjörð er frábært og breytist með hverju skrefi göngunnar.North Explorers bjóða upp á tvær slíkar ferðir en auðvelt er að sérsníða ferðir ef um hóp er að ræða. Fyrri ferðin er Dalahopp frá Seljalandsdal yfir til Hnífsdals. Þetta er auðveld leið en mjög falleg. Útsýnið úr skarðinu milli Þjófatinda er frábært og botninn á Hnífsdal er skemmtilegt gönguland. Mikil saga er á þessari leið sem leiðsögumenn okkar fræða hópinn um á leiðinni. Hin ferðin er Upp á fjöll, en þá er gengið frá Seljalandsdal yfir í Syðridal í Bolungarvík. Endað er í heita pottinum í sundlauginni í Bolungarvík.