Ísafjörður hefur
skapað sér orðspor sem miðstöð sjókajakferða á Íslandi. Ástæða þess eru
endalausir möguleikar á kajakferðum um firði og víkur Ísafjarðardjúps,
Jökulfjarða og Hornstranda. North Explorers býður upp á fjölbreytt úrval ferða sem henta jafnt byrjendum sem vilja kynnast þessari spennandi íþrótt, sem og lengra komnum ræðurum sem eru að leita að meira krefjandi ferðum. Auðveldasta og stysta ferðin er þægileg ferð um Pollinn á Ísafirði þar sem náttúrunnar er notið frá öðru sjónarhorni. Fyrir þá sem vilja taka fullan dag á kajak, er Tveggja fjarða rólegheit alveg tilvalin. Þá er róið úr botni Seyðisfjarðar, í kringum nesið Folafót og inn í Hestfjörð. Ef
veður er gott, er aldrei að vita nema við tökum land í Vigur, fegurstu
eyju á Íslandi áður en róið er inn Hestfjörðinn. Í þessari ferð er mjög líklegt að sjá seli, refi og jafnvel hvali. Síðasta kajak dagsferðin sem er í boði, er Kajakparadís í Reykjanesi. Reykjanes í Ísafjarðardjúpi er frábær staður til kajakróðurs og þangað kemur kajakfólk allstaðar af landinu til að njóta útivistar í fallegri náttúru. Það er upplagt að æfa fyrstu tökin í stærstu útisundlaug á Vestfjörðum áður en haldið er á hafið.