Calm Waters

Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
Open the calendar popup.
1
7990 ISK
47.49 EUR
62.10 USD
ISK
47.49 EUR
62.10 USD
Bookmark and Share

Kajakferð á lygnum sjó á Ísafirði

Þessi ferð er fullkomin fyrir þá sem eru að leita að spennandi kynningu á þessari frábæru íþrótt.

Að róa meðan fjöllin gnæfa yfir Ísafjörð, upplifir þú nálægð við náttúrurna og landslagið frá spennandi sjónarhorni í öruggu umhverfi.

Við byrjum á stuttri kennslu í róðri og flotsetjum síðan kajakana bak við Sjóminjasafnið í Neðstakaupstað og róum hring inn með firðinum meðan við fylgjumst með ýmsum fuglategundum og selum.

Við notumst við mjög stöðuga kajaka sem henta byrjendum vel. Eins erum við með kajaka fyrir lengra komna.


Búnaður:

Hlýr fatnaður sem má blotna. Gott að vera með föt til skiptana, þó mjög ólíklegt sé að maður blotni mikið.


Erfiðleikastuðull: 2 af 5 – Auðvelt

Tímabil: Allt árið

Brottför: Á hverjum degi kl: 9:30 frá skrifstofu North Explorers.

Lengd: 2,5 klst.

Verð: 7500 kr. á einstakling

Innifalið í verði: Akstur frá Ísafjarðarflugvelli, kajakbúnaður og leiðsögn

Lágmarksþátttaka: 2 einstaklingar

Hægt er að semja um brottför á öðrum tíma dags ef leiðsögumenn eru lausir. Endilega spyrjið!


Önnur afþreying:

Ísafjörður hefur upp á margt annað að bjóða en spennandi dagsferðir. Frábært úrval af handverki, litrík og falleg uppgerð gömul hús í miðbænum og bestu sjávarrétti sem sögur fara af úr veiði dagsins, Sjóminjasafnið ásamt annarri ómissandi afþreyingu. Gerðu sem mest úr dvöl þinni á Ísafirði.