Reykjanes í Ísafjarðardjúpi
er uppáhaldsstaður margra íslenskra kajakræðara. Ástæðan liggur í augum uppi um
leið og komið er á staðinn. Vatnið í kringum Reykjanes er oftast lygnt og selar
sjást oft austan við nesið. Gamla útisundlaugin, sú stærsta á öllum
Vestjförðum, er frábær æfingalaug áður en haldið er á sjóinn með Drangajökul og
Snæfkallaströnd í baksýn.
Eftir 1,5 klst. akstur frá
Ísafirði erum við tilbúin að skella okkur í laugina í stutta
kennslu þar sem förum yfir róðrartækni, félagabjörgun og kajakveltu. Eftir hádegismat
höldum við út á sjó í rólega kajakferð meðfram stöndinni til að skoða seli og
fugla á heimaslóðum sínum. Ef veður er gott, gætum við reynt að róa að Borgarey
og kannað lundabyggðina. Kajakferðin í nágrenni Reykjaness er 3-4
klukkustundir, áður en haldið er aftur til Ísafjarðar.
Búnaður: Mælt er með því
að vera í ullar- eða flís nærfatnaði undir vatnsheldum kajakfatnaði. Komdu með
aukafatnað til öryggis. Ekki gleyma sundfatnaði og handklæði.
Erfiðleikastuðull: 3 af 5 – Meðal
Tímabil: 15/5 – 30/9
Brottför: Mánudaga kl: 9:00
frá skrifstofu North Explorers.
Lengd: 8 klst.
Verð: 15.400 á mann
Innifalið í
verði: Akstur inn í Reykjanes, leiðsögn, sjókajakbúnaður, aðgangur að sundlauginni og girnilegt heimatilbúið nesti!
Lágmarksþátttaka:
4 einstaklingar
Endilega athugið hvort hægt er að fara á öðrum degi ef ekki hentar að fara á mánudegi.