Ísafjarðardúp
hentar einstaklega vel til kajaksiglinga fyrir bæði byrjendur eða lengra komna
kajakræðara. Einstök fegurð Djúpsins er vel þekkt af heimamönnum en ókunn
umheiminum. Strandlengja Snæfjallastrandarinnar minnir virkilega á nálægð
norðurheimskautsbaugs með snæviþöktum hlíðum og fimmti stærsti jökull Íslands
gnæfir yfir landslagið. Folafótur er nes milli Seyðisfjarðar og Hestfjarðar og
er fallegur staður til að róa um meðan notið er ótrúlegs dýralífs og
strandlengjunnar frá einstökum sjónarhóli.
Ferðin hefst á 40
mínútna keyrslu frá Ísafirði inn í botn Seyðisfjarðar. Eftir stutta kynningu og
öryggiskennslu, undirbúum við bátana og leggjum af stað á lygnu vatninu meðfram
stöndinni. Við enda nessins leggjumst við að landi á sandströnd til að skoða
bergmyndanir sem urðu til vegna rofs sem og rústir byggðarinnar í Folafæti. Við
munum fylgjast vel með selum og hvölum þar sem þetta er staður þar sem oft sést
til slíkra dýra. Ef veðrið er gott og ef hópurinn er tilbúinn til, getum við
róið frá Folafæti út í eyjuna Vigur. Eyjan er algjör perla og alltaf gaman að
koma þangað og upplifa stórkostlegt fuglalífið og lífsins gang íbúa eyjarinnar,
sem sannarlega slær hægar en í þéttbýlinu. Næst róum við meðfram strönd
Hestfjarðar þar sem við komum að landi við þjóðveginn og keyrum aftur til
Ísafjarðar.
Erfiðleiki: 4 af 5 –
Krefjandi
Tímabil: 15/5 – 30/9
Brottför: Laugardaga kl:
9:00 frá skrifstofu North Explorers.
Lengd: 8 klst
Verð: 14.400 kr. á
einstakling
Innifalið í
verði: Akstur, leiðsögn
og allur kajakbúnaður
og girnilegt heimatilbúið nesti!
Lágmarksþátttaka: 2 einstaklingar
Hægt er að semja
um brottför á öðrum degi ef leiðsögumenn eru lausir. Endilega spyrjið!
Búnaður: Mælt er með því
að vera í ullar- eða flís nærfatnaði undir vatnsheldum kajakfatnaði og
aukafatanað til öryggis.