Við bjóðum upp á akstur til og frá flugvelli í tengslum við okkar ferðir og akstur á gististað á Ísafirði í lok ferðar sé þess óskað. Vinsamlegast takið fram við bókun hvort óskað er eftir þessari þjónustu. North Explorers sjá fyrir öllum sérhæfðum búnaði sem tilheyrir viðkomandi ferð.

Einungis þarf að koma klæddur í samræmi við ferðalýsingu og með lítinn bakpoka o.þ.h. sé slíkt tekið fram. Vinsamlegast takið eftir að það eru aldurstakmörk í sumar ferðir. Ef þið erum með yngri börn, skuluð þið hafa samband og við munum gera okkar besta til að leysa úr því.

Allar okkar ferðir eru háðar duttlungum veðurguðanna og North Explorers áskilur sér rétt til að breyta og jafnvel fella niður ferðir ef við teljum að öryggi gesta sé ekki fullnægjandi m.t.t. veðurs. Gestir bera fulla ábyrgð á athöfnum sínum meðan á ferð stendur og þeir verða að fara eftir skýrum fyrirmælum leiðsögumanna.

Ferðir North Explorers geta falið í sér ákveðna áhættu og allir gestir verða að gera sér það ljóst áður en haldið er í ferð. Megið þið njóta ferðalagsins um vestfirska náttúru.