Bookmark and Share

Hvernig kemst ég til Ísafjarðar?

Það er mjög auðvelt að komast til Ísafjarðar og í raun mun styttra en margir halda. Vegasamgöngur hafa batnað mikið undanfarið og flugið stendur alltaf fyrir sínu.

Það eru 2-3 flug á dag frá Reykjavík (40 mín) og flugvöllurinn er í einungis fimm mínútna fjarlægð frá miðbænum.

Aksturinn frá Reykjavík um heiðar og firði Vestfjarðakjálkans, er skemmtilegt ferðalag í sjálfu sér. Það tekur um 5-6 tíma og er malbikað alla leið ef farið er Bröttubrekku, Dalina og yfir Arnkötludal. Leiðin um Ísafjarðardjúp er líka orðin mun þægilegri að afloknum brúarframkvæmdum og breikkun vega.

Ísafjörður er gamall bær þar sem sagan hvílir í hverju horni. Bæinn prýða mikill fjöldi gamalla húsa sem gaman er að skoða. Við mælum eindregið með því að dvelja á Ísafirði í nokkrar nætur og njóta rólegheitanna í faðmi fjalla blárra.

Vestfirðir eru náttúruperla og þú ættir að nýta tækifærið og skoða þá vel. Okkar uppáhaldsstaðir sem við mælum eindregið með, eru Hornstandir (aðgengilegar með bátsferðum frá Ísafirði), Heydalur í Ísafjarðardjúpi, Kaldalón, Ketildalir í Arnarfirði, Rauðisandur, Látrabjarg – vestasti oddi Evrópu, friðlandið í Vatnsfirði. Listinn er lengri!