Bookmark and Share

Algengar spurningar um ferðir North Explorers

Hér eru svör við algengum spurningum sem okkur berst.

Mig langar að fara í Reykjanesferðina en hún er bara á mánudegi. Er hægt að fara annan dag?
Já, það er hægt. Við þurfum þó lágmark fjóra gesti í þá ferð og í flestum tilfellum er hægt að fara á öðrum degi. Það miðast þó við að leiðsögumaður sé á lausu og því gæti þurft að fara seinna af stað en áætlunin gerir ráð fyrir.

Hvað þarf maður að vera í góðu líkamlegu formi til að komast með í fjallgönguna á Kaldbak?
Ef þú ert í vafa, er gott að taka eina æfingaferð á fjall í nágrenninu og kanna úthaldið. Að ganga á Kaldbak er ekki erfitt og börn á ýmsum aldri hafa komist á toppinn.

Verður maður mjög blautur í kajakferðunum?
Í flestum tilfellum verður maður ekkert blautur svo heitið geti. Við erum með mjög góðan búnað og allir fá buxur og stakk til afnota meðan á ferð stendur. Maður verður í flestum tilfellum aðeins rakur á rassinum. Við mælum samt ekki með því að mæta í sparifötunum í kajakferðir! Gott er að hafa með aukaföt til skiptanna í lengri ferðunum eins og buxur og peysu.

Ég hef aldrei róið á kajak en langar að prófa. Eru þeir ekki svakalega óstöðugir?
Kajakar eru mjög misjafnir. Sumir eru hraðskreiðir og valtir, aðrir eru aðeins hæggengari og stöðugir. Við erum með nokkrar gerðir kajaka sem eru mis breiðir og langir. Því er alltaf hægt að finna báta sem henta getu og stærð fólks. Breiðustu bátarnir eru mjög stöðugir og engum hefur tekist að velta þeim ennþá...