Bookmark and Share

Búnaður sem gott er að hafa meðferðis

Hér eru nokkrir listar yfir búnað sem nauðsynlegt er að hafa meðferðis í ferðirnar okkar. Einungis er talinn upp lágmarksbúnaður. Auðvitað er gaman að hafa með sér myndavél, sjónauka ofl. en það er mjög persónubundið.

Fjallgöngur og gönguferðir
  • Góðir gönguskór. Nauðsynlegt er að vera búinn að ganga þá til.
  • Hlýr innanundirfatnaður og ullar- eða flíspeysa.
  • Regnheldur jakki og buxur.
  • Lítill bakpoki undir nesti ofl.
  • Húfa og vettlingar.

Kajakferðir
Þessi listi á ekki við kajakferðina á Pollinum á Ísafirði. Enginn sérstakur útbúnaður er nauðsynlegur í þá ferð, annar en fatnaður eftir veðri.
  • Hlýr innanundirfatnaður og ullar- eða flíspeysa.
  • Húfa og vettlingar.
  • Fatnaður til skiptanna.
  • Nesti fyrir daginn. Hægt er að kaupa heimatilbúinn nestispakka við bókun. Gestir verða að koma með eigin drykk fyrir daginn ca 1 lítra.