Bookmark and Share

Lengri ferðir

Við skipuleggjum alls kyns lengri ferðir, allt frá einnar nætur ferðum til tveggja vikna!  Á sumrin leggjum við áherslu á sjókajakferðir um Ísafjarðardjúp og Jökulfirði og könnum eyðifirði, dali og eyrar sem lögðust í eyði um miðja nítjándu öldina.  Í dag býr enginn á þessum svæðum nema refir, selir og tugþúsunda fugla.

Á veturna og á vorin bjóðum við upp á hvers kyns skíða- og vetrarferðir hvort sem er fyrir vana útivistargarpa eða byrjendur sem vilja prófa að sofa í snjóhúsi!