Bookmark and Share

Um North Explorers

North Explorers er hluti af Borea Adventures sem hefur síðan 2006 staðið fyrir ævintýraferðum á seglskútu um Vestfirði, austur Grænland og Jan Mayen við góðan orðstír. North Explorers sér um allar dagsferðirnar og lengri kajakferðir. Markmið NE er að bjóða upp á frábærar dagsferðir og lengri ferðir um náttúru Vestfjarða í sem mestri sátt við náttúruna. Við trúum að besti ferðamátinn sé að ferðast ,,hljóðlega" þ.e. notast sem minnst við vélknúinn ökutæki. Því leggjum við mesta áherslu á gönguferðir og fjallgöngur og kajakferðir af ýmsum erfiðleikum.