Bookmark and Share

Skrifstofan

Við erum með notalega aðstöðu í gömlu nýuppgerðu húsi í miðbæ Ísafjarðar sem í daglegu tali er nefnt Hæstikaupstaður.  Þar geymum við allan okkar kajak, klifur, skíða og útilegubúnað en einnig erum við með þægilega sófa og arineld!  Útivistatímarit og bækur eru í hillum og ávallt er heitt á könnunni.  Endilega kíkið við næst þegar þið eigið leið um!