Bookmark and Share

Starfsfólk

Starfsfólk North Explorers er teymi fólks sem allt hefur það sameiginlegt að hafa ástríðu fyrir hvers kyns útivist, hvort sem það eru kajakróður, skíði, fjallgöngur eða klifur.  Við höfum óbilandi trú á Vestfjörðum og erum sannfærð um það að Ísafjörður sé tilvalinn upphafsstaður fyrir hvers kyns ævintýraferðir, hvort sem er sumar eða vetur.

Leiðsögumenn okkar þekkja vel til Vestfjarða og hafa gríðarlega reynslu af leiðsögn um svæðið. Þeir bera mikla virðingu fyrir náttúrunni og eru auðvitað mjög skemmtilegir. Öryggi skiptir alla okkar leiðsögumenn miklu máli og er það lykilatriði til að gestir okkar njóti ferðarinnar. Leiðsögumenn okkar eru sannir ævintýramenn og hafa yndi af því að sýna það besta sem Vestfirðir hafa upp á að bjóða.